fsdfsdf
none

LÍA - Rými fyrir listamenn til að vaxa

Um LÍA

Listasjóðurinn LÍA er stofnaður
í minningu Emilíu Þórunnar

„Hugmyndin að listasjóðnum var búin að gerjast í huga mér í nokkurn tíma. Mig langaði að gera eitthvað til minningar um Emilíu Þórunni, barnabarnið mitt. Emilía Þórunn var mjög listræn og skapandi. Mér fannst það því liggja beinast við að stofna vinnustofu fyrir listamenn, þar sem þeir gætu skapað list sína í fallegu og vel staðsettu rými. Það var líka mikilvægt að þeir gætu deilt rýminu og listsköpuninni í samvinnu við aðra listamenn. Ég bar hugmyndina upp við börnin mín sem fannst að við ættum að láta hugmyndina verða að veruleika.“

Lesa meira

hugmynd
mynd 1

Sækja um

Veitum listamönnum rými

LÍA listasjóður veitir listmálurum tækifæri til að vinna og þróa verk sín í rúmgóðu vinnurými í Borgartúni.

Rýmið er um 230 fermetrar að stærð og er ætlað allt að fjórum listmálurum sem deila því með sér í allt að tvö ár, án kostnaðar. Stærð rýmisins gefur góða möguleika til að vinna með stærri verk og skapa sér eigið vinnusvæði innan sameiginlegrar aðstöðu.

Sækja um

mynd 1
mynd 2
aaaaaa
mynd 3