hugmynd

Um LÍA

Hugmyndina að listasjóðnum
fékk Hólmfríður Lillý, amma
Emilíu Þórunnar

„Hugmyndin að listasjóðnum var búin að gerjast í huga mér í nokkurn tíma. Mig langaði að gera eitthvað til minningar um Emilíu Þórunni, barnabarnið mitt. Emilía Þórunn var mjög listræn og skapandi. Mér fannst það því liggja beinast við að stofna vinnustofu fyrir listamenn, þar sem þeir gætu skapað list sína í fallegu og vel staðsettu rými. Það var líka mikilvægt að þeir gætu deilt rýminu og listsköpuninni í samvinnu við aðra listamenn. Ég bar hugmyndina upp við börnin mín sem fannst að við ættum að láta hugmyndina verða að veruleika.“

Um Rýmið

Rými þar sem listamenn
geta skapað

LÍA listasjóður veitir listmálurum tækifæri til að vinna og þróa verk sín í rúmgóðu vinnurými í Borgartúni.

Rýmið er um 230 fermetrar að stærð og er ætlað allt að fjórum listmálurum sem deila því með sér í allt að tvö ár, án kostnaðar. Stærð rýmisins gefur góða möguleika til að vinna með stærri verk og skapa sér eigið vinnusvæði innan sameiginlegrar aðstöðu.

Sækja um


mynd 2
lia

LÍA

Um Emilíu Þórunni

Emilía Þórunn fæddist í Reykjavík 24. september 2006. Það kom fljótlega í ljós að þar var á ferðinni skarpgreind, ljúf, glaðlynd og ákveðin stúlka. Hún bjó fyrstu árin í Setberginu í Hafnarfirði og síðan í Norðlingaholti og naut nærverunnar við náttúruna á báðum stöðum. Hún var ótrúlega skapandi, skemmtileg, hjálpsöm og umhyggjusöm. Hún var líka gamaldags í háttum og tali, bókhneigð, listræn, djúpt hugsandi og talaði mikið og hló hátt.

Hún flutti með fjölskyldunni til Svíþjóðar níu ára gömul en varði mörgum stundum á Akureyri. Hún var fljót að komast inn í nýtt tungumál og menningu og hafði alltaf eitthvað að gera; annaðhvort að skapa, lesa, búa eitthvað til eða skipuleggja næsta viðburð eða hátíðarhöld. Hún var hörkudugleg, mikill húmoristi og gat alltaf fundið upp á einhverju sniðugu að hafa fyrir stafni.

Hún kom alltaf ótrúlega vel fyrir og var vel máli farin á þremur tungumálum og vel liðin af öllum; bæði fullorðnum og börnum. Hún var ábyrgðarfull og sá ótrúlega vel um systkini sín sem hún bar á örmum sér og var umhugað að liði alltaf vel.

Um 14 ára aldurinn fór að bera á andlegri vanlíðan hjá Emilíu Þórunni og hún féll fyrir eigin hendi 28. mars 2021. Hún óskaði þess að við myndum muna hláturinn og brosið hennar og hvernig augun hennar skiptu litum í sólinni.