Fjórir listamenn fá aðstöðu í nýrri vinnustofu LÍU

Listamennirnir

Listasjóðurinn LÍA hefur valið þá fjóra listmálara sem fá aðstöðu í nýrri vinnustofu sjóðsins í Katrínartúni 4.
Alls bárust 78 umsóknir í sumar frá öflugu listafólki, bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem eiga langan feril að baki.
Listmálararnir sem fengu aðstöðu að þessu sinni voru Elín Hansdóttir, Jón Sölvi Walderhaug Eiríksson, Júlíanna Ósk Hafberg og Þórdís Erla Zoëga.

Vinnustofan
Vinnustofan var formlega opnuð 24. september. Hún er um 230 fermetrar og listamennirnir deila henni í allt að tvö ár, sér að kostnaðarlausu.
Stærð rýmisins gefur þeim færi á að vinna stærri verk og hafa sitt eigið vinnusvæði. Um leið eru þau hluti af samfélagi listamanna sem deila aðstöðunni.
LÍA þakkar öllum sem sendu inn umsókn kærlega fyrir áhugann. Sjóðurinn þakkar einnig Íþöku fyrir að leggja til húsnæðið undir vinnustofuna.

Um listamennina
Elín Hansdóttir (f. 1980) er myndlistarkona sem hefur í rúma tvo áratugi unnið með rými og skynjun í innsetningum, ljósmyndum, skúlptúrum og kvikmyndum. Hún hefur sýnt víða, meðal annars í Berlín, London og í Listasafni Íslands, og hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2016.
Jón Sölvi Walderhaug Eiríksson (f. 1999) lauk diplómanámi í listmálun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2026 og BA-prófi í hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Hann er einn af sex stofnendum listamannarekna rýmisins Hermu á Hverfisgötu 4, þar sem hann hélt fyrstu einkasýningu sína, Gangnamenn, í júlí. Í verkum sínum kannar hann dulvitund, náttúru og kynhneigð.
Júlíanna Ósk Hafberg (f. 1992) lauk meistaranámi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2023. Hún vinnur einkum með málverk og textíl og fjallar í verkum sínum um reynslu kvenna í nútímasamfélagi.
Þórdís Erla Zoëga (f. 1988) útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Akademíunni í Amsterdam árið 2012 og vinnur með innsetningar, skúlptúra, málverk og myndbönd. Hún hefur sýnt víða heima og erlendis og árið 2023 var hún valin til að gera nýtt listaverk við aðalinngang nýja Landspítalans.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.