28.05.2010 20:18
Staðan í torfæruni

Svona er staðan í íslandsmeistaramótinu í torfæru eftir 3 umferðir.

 stadan 

21.05.2010 22:47
Helgin 22-23.maí

Við viljum minna menn á keppnir helgarinnar sem eru Rallý á vegum BÍKR og torfæra á vegum Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu.

Frekari upplýsingar um rallið má finna á vef bikr.is

Stutt myndskeið frá síðustu torfæru fylgir hér

 

14.04.2010 09:50
Nýtt á vefnum.

Nú er hafin uppsetning á reglum og fleiri uppfærslum á vef Akstursíþróttanefnda ÍSÍ/LÍA.  Uppfært dagatal er komið ásamt verðskrá, reglum FIA um veltibúr ásamt grunnreglum FIA úr International Sporting Code.  Næst koma uppfærðar keppnisreglur fyrir hverja grein.

 

Ákveðið hefur verið að nefna þennan kafla á vefnum Reglur "Hjalti" til minningar um félaga okkar og helsta reglufræðing akstursíþrótta til fjölda ára, Hjalta E. Hafsteinsson, en hann lést á síðasta ári.  Hjalti átti stóran þátt í allri reglusmíði, þýðingum og útfærslum á reglum í öllum greinum akstursíþrótta og var hafsjór fróðleiks í því efni.  Hann var einnig ævinlega fús til að að aðstoða menn í sambandi við reglur og túlkun þeirra.  Það er því við hæfi að vitna til hans þegar reglur í akstursíþróttum eru til umfjöllunar.  Þess vegna getum við alltaf vitnað til "Hjalta" í sambandi við reglur.

 

22.01.2010 18:31
Keppnisdagatal ÍSÍ/LÍA 2010

Keppnisdagatal Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA er nú tilbúið og uppkast birt hér með.  Ætlunin er að birta endanlega útgáfu 1. febrúar næstkomandi.  Þess er því óskað, að athugasemdum verði komið á framfæri fyrir þann tíma.

Dagatal 2010

Dagatalið er í PDF formi og þarf Adobe Reader til að opna það. Adobe reader má sækja hér

 

24.07.2009 01:24
Íslandsmeistaramótið í Torfæru
Sérútbúnir   Samtals Götubílar   Samtals
1. Hafsteinn Þorvaldsson 39 1. Steingrímur Bjarnason 50
2. Jón Örn Ingileifsson 34 2. Haukur Þorvaldsson 49
3. Leó Viðar Björnsson 33 3. Hlynur B. Sigurðsson 35
4. Jóhann Rúnarsson 31 4. Páll Pálsson 23
5. Einar Gunnlaugsson 20 5. Hannes Berg Þórarinsson 22
6. Björn Bragi Sævarsson 13 6. Stefán Bjarnhéðinsson 15
7. Ólafur Bragi Jónsson 12 7. Fannar Smárason 3
8. Bjarki Reynisson 12 8. Davíð Guttormsson 2
9. Sigurður Þór Jónsson 11      
10. Vignir Rúnar Vignisson 7      
11. Guðbjörn Grímsson 6      
12. Benedikt Sigfússon 5      
13. Graham Little 4      
14. Alexander Már Steinarsson 3      
15. Róbert Agnarsson 3      
16. Guðlaugur S. Helgason 1    


     Sjá nánar:
 
    http://torfaera.is/spjall/viewtopic.php?t=2828&start=15
14.07.2009 23:58
Íslandsmeistaramótið í Sandsp.
  

Uppfært þann:

 

15.09.2009

 

Sæti:Nafn:Tæki: Samtals:

 

1.Þorgeir ÓlasonKawasaki KX 125304

2.Kristján ValdimarssonHonda CFR 450279

3.Hafsteinn EylandHonda CFR 500230

4.Brynjar SchiöthKTM 450132

5.Birkir Ingi SímonarsonKTM 380130

6.Valdimar G. ValdimarssonGasGas 30085

7.Kristján HafliðasonKawasaki KX 45045

Hjól 500cc+   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki: Samtals:

 

1.Björn B. SteinarssonSuzuki 1100322

2.Jón Kr. JacobsenYamaha R1206

3.Svanur H. SteindórssonHonda CBR 60087

Vélsleðar   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki: Samtals:

 

1.Garðar HallgrímssonSki-Doo Mach Z291

2.Aðalbjörn TryggvasonArctic Cat271

3.Ragnar Már HanssonYamaha  175

4.Ingólfur GuðvarðarsonSki-Doo MXZ76

Fjórhjól   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki: Samtals:

 

1.Smári SigurðssonCan-Am 800195

2.Guðmundur GústafssonYamaha YFZ108

3.Brynjar SchiöthCan-Am 80087

4.Elmar Jón GuðmundssonCan-Am 80076

5.Jakob B. BjarnasonYamaha Raptor64

6.Hjörtur MagnússonYamaha YFZ45

7.Hafsteinn A. TorfasonYamaha YT 17544

 Fólksbílar   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki:Samtals:

1.Sigurpáll PálssonChevrolet Nova322

2.Björgvin ÓlafssonFord Mustang239

3.Garðar Þór GarðarssonPontiac Trans-Am176

4.Hjörvar JóhannessonFord Mustang76

5.Þröstur Marel ValssonDodge Dakota65

Sérsmíðuð ökutæki

 

 

 

 

 

 

 

 

Sæti:Nafn:Tæki: Samtals:

 

1.Halldór HaukssonPorsche270

2.Grétar FrankssonChevrolet Vega224

3.Anton ÓlafssonFord Escort163

4.Stígur HerlufsenVolvo PV 54487

5.Leifur RósenbergssonFord Pinto78

  Jeppar   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki:Samtals:

1.Steingrímur BjarnasonWillys304

2.Haukur ÞorvaldssonSilverpower271

3.Ásgeir BragasonNissan 3000203

4.Páll SteindórssonFord Bronco119

5.Bjarni HjaltalínScout111

6.Gunnlaugur SigvaldasonSubaru Impreza88

7.Páll PálssonWillys86

8.Magnús SigurðssonJeep Wrangler45

9.Daníel G. IngimundarsonSilverado 250044

10.Baldur GíslasonSuzuki Vitara44

11.Grétar Óli IngþórssonFord F-15043

12.Sigmar ÞrastarsonToyota Landcruiser43

13.Þorsteinn JónssonWillys43

14.Árni Hólm ÞormóðssonCherokee32

15.Jóhannes G. SigurjónssonCadillac Escelade22

Útbúnir Jeppar   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki:Samtals:

1.Ólafur Bragi JónssonRefurinn302

2.Einar GunnlaugssonKölski196

3.Jóhann RúnarssonTrúðurinn163

4.Guðlaugur S. HelgasonGaldra Gulur76

5.Jóhann B. MagnússsonFordson76

6.Gísli G. JónssonJeepster65

7.Eyjólfur SkúlasonHlébarðinn65

8.Róbert AgnarssonHeimasætan65

9.Daníel G. IngimundarsonSecret44

Opinn flokkur   

 

     

 

Sæti:Nafn:Tæki:Samtals:

1.Hafsteinn ÞorvaldssonÞakan108

2.Edvard Ágúst ErnstssonDragster86

3.Jens S. HerlufsenFiat Toppolino67

 

08.07.2009 19:15
Íslandsmeistaramótið í Rally
    

 Uppfært þann: 15.09.2009

 
 Ökumenn - HeildinSamtals Aðstoðarökumenn - HeildinSamtals
1Jón Bjarni Hrólfsson42,51Sæmundur Sæmundsson42,5
2Jóhannes V. Gunnarsson342Björgvin Benediktsson34
3Páll Harðarson27,253Aðalsteinn Símonarson27,25
4Fylkir A. Jónsson21,54Heimir Snær Jónsson14
5Hilmar B. Þráinsson175Elvar Jónsson13,5
6Aðalsteinn G. Jóhansson116Stefán Þór Jónsson12
7Guðmundur O. Mckinstry117Hörður Darri Mckinstry11
8Hlöðver Baldursson9,758Baldur Hlöðversson9,75
9Pétur S. Pétursson89Þórður Ingvason8
10Sigurður Bragi Guðmundsson810Ísak Guðjónsson8
11Marian Sigurðsson811Jón Þór Jónsson8
12Guðmundur Höskuldsson812Ólafur Þór Ólafsson8
13Sighvatur Sigurðsson7,2513Andrés Freyr Gíslason7,25
14Sigurður Óskar Sólmundarson514Eyjólfur Guðmundsson7
15Ásta Sigurðardóttir515Guðmundur Þór Jóhannsson5
16Sigurður Óli Gunnarsson416Oddur B Sigurðsson5
17Daníel Sigurðsson417Tinna Viðarsdóttir5
18Gunnar Freyr Hafsteinsson418Elsa K. Sigurðardóttir4
19Eyjólfur Melsteð2,519Þorgerður Gunnarsdóttir4
20Júlíus Ævarsson220Jóhann Hafsteinn Hafsteinsson4
21Halldór Vilberg221Baldur Jezorski2,5
22Gunnlaugur Ingvar Ólafsson122Ólafur Tryggvason1
23Baldur Jezorski123Ingólfur Freyr Gunnlaugsson1
24Þórður Bragason024Sigurður Arnar Pálsson1
25Guðmundur S. Sigurðsson025Elias Ilya1
26Magnús Þórðarson026Lárus Rafn Halldórsson0
27Þorsteinn S. Mcinstry027Jón B. Sigurðsson0
28Örn R. Ingólfsson028Guðleif Ósk Árnadóttir0
29Ragnar Einarsson029Bragi Þórðarson0
30Linda Karlsdóttir030Þórður Andri Mckinstry0
31Heimir Snær Jónsson031Óskar Hreinsson0
32Elvar Rúnarsson032Steinar Sturluson0
33Valdimar Jón Sveinsson033Íris Ragnarsdóttir0
34Kristinn Valgeir Sveinsson034Halldór Gunnar Jónsson0
35Borgar Vagn Ólafsson0
36Þorgeir Árni Sigurðsson0
37Kristján Ásgeirsson0
38Ingi Mar Jónsson0
39Brimrún Björgólfsdóttir0
40Skafti Svavar Skúlason0
 Ökumenn - JeppaflokkurSamtals Aðstoðarökumenn - JeppaflokkurSamtals
1Guðmundur O. Mckinstry41,51Hörður Darri Mckinstry41,5
2Ásta Sigurðardóttir37,752Tinna Viðarsdóttir37,75
3Marian Sigurðsson33,253Jón Þór Jónsson33,25
4Sighvatur Sigurðsson304Andrés Freyr Gíslason30
5Eyjólfur Melsteð12,55Baldur Jezorski12,5
6Daníel Sigurðsson106Þorgerður Gunnarsdóttir10
7Þorsteinn S. Mcinstry107Þórður Andri Mckinstry10
8Baldur Jezorski108Elias Ilya10
9Gunnlaugur Ingvar Ólafsson59Ingólfur Freyr Gunnlaugsson5
10Heimir Snær Jónsson410Halldór Gunnar Jónsson4
 Ökumenn - 2000 flokkurSamtals Aðstoðarökumenn - 2000 flokkurSamtals
1Hilmar B. Þráinsson42,51Stefán Þór Jónsson30
2Hlöðver Baldursson362Baldur Hlöðversson28
3Halldór Vilberg313Sigurður Arnar Pálsson25
4Guðmundur S. Sigurðsson15,54Eyjólfur Guðmundsson20,5
5Júlíus Ævarsson14,255Guðleif Ósk Árnadóttir15,5
6Örn R. Ingólfsson12,756Ingi Örn Jónsson12
7Katarínus Jón Jónsson127Jóhann Hafsteinn Hafsteinsson10
8Gunnar Freyr Hafsteinsson108Borgar Vagn Ólafsson8
9Linda Karlsdóttir59Óskar Hreinsson7,75
10Magnús Þórðarson010Skafti Svavar Skúlason6,25
11Kristinn Valgeir Sveinsson011Ólafur Tryggvason6
12Íris Ragnarsdóttir5
13Þorgeir Árni Sigurðsson5
14Bragi Þórðarson0
15Brimrún Björgólfsdóttir0
 Ökumenn - NýliðaflokkurSamtals Aðstoðarökumenn - NýliðaflokkurSamtals
1Halldór Vilberg45,51Sigurður Arnar Pálsson37,5
2Örn R. Ingólfsson20,252Eyjólfur Guðmundsson22,5
3Júlíus Ævarsson203Ingi Örn Jónsson18
4Katarínus Jón Jónsson184Óskar Hreinsson12,25
5Hilmar B. Þráinsson12,55Skafti Svavar Skúlason10
6Linda Karlsdóttir86Ólafur Tryggvason8
7Magnús Þórðarson07Íris Ragnarsdóttir8
8Kristinn Valgeir Sveinsson08Þorgeir Árni Sigurðsson8
9Bragi Þórðarson0
10Brimrún Björgólfsdóttir0
18.12.2008 18:41
Sumarið 2009
Dagatalið er staðfest hér efst til vinstri á síðunni undir
Dagatal 2009.


F.H.Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA
Þórarinn Karlsson
11.12.2008 11:54
Lög

http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/507-2007

Hér er að finna reglugerðina sem unnið er eftir.

Þórarinn Karlsson
togud@simnet.is
11.12.2008 11:33
Öryggis
BJÖRGUNARÁÆTLUN
Keppnisstjóri skal sjá um að þessari áætlun sé framfylgt og fela það ákveðnum mönnum. Halda
skal fund þessara aðila og fara yfir það fyrirkomulag sem viðhaft er í hvert skipti.
Eftirfarandi tæki og mannskapur þurfa vera til staðar við allar brautarkeppnir, þar sem hætta er talin á veltum og öðrum óhöppum.
  1. Björgunarbíll, sérstaklega ætlaður til flutnings á tækjum.
  2. Nægilegur fjöldi slökkvitækja ásamt mannskap á þau.
  3. Sjúkragögn og menn til að veita fyrstu hjálp.
  4. 2 - 3 menn í hópum til að ná keppendum úr bílum.
  5. Eldtefjandi fatnaður á mennina í 4. lið.
  6. Vinnuhanskar á alla.
  7. Vasahnífar í hvern hóp.
  8. Flaggarar skv. keppnisreglum.
Þegar óhapp á sér stað skal eftirfarandi tilhögun koma til framkvæmda:
  1. Flaggarar gefi öðrum keppendum þegar merki skv. reglum.
  2. Björgunarmenn, slökkvitækjamenn og fyrsta hjálp hraði sér strax á staðinn. Þeir skulu gæta sín á öðrum keppendum.
  3. Aðrir starfsmenn gæti þess strax að áhorfendum, aðstoðarmönnum og öðrum sé haldið frá staðnum
  4. Þulur og keppnisstjóri fylgist grant með því sem gerist.
  5. Björgunarmenn gangi úr skugga um að öryggisrofi keppnistækis hafi verið sleginn út og athugi ástand ökumanns. Sé hann ómeiddur skal allt kapp lagt á að koma honum úr bílnum og frá brautinni. Sé grunur um meiðsli, skal strax kalla til fyrstu hjálp og sjúkrabíl. Varast skal öll upphróp og læti, en nota fyrirfram ákveðin merki. Slökkvimenn einbeita sér að því að koma veg fyrir eld.
  6. Athuga ástand ökumanns með tilliti til losts og heilahristings.
Sé um banaslys eða annað alvarlegt slys að ræða skal eftirfarandi tilhögun koma til framkvæmda:
  1. Keppnin skal tafarlaust stöðvuð.
  2. Keppnisstjóri boði til lögreglu og sjúkralið, einnig Rannsóknarlögreguna sé um banaslys að ræða.
  3. Keppnisstjóri setji sig strax í samband við stjórn LÍA eftir þeim leiðum er getið er um í keppnisleyfi.
  4. Keppnisstjóri ásamt LÍA ákveða í sameiningu framhald allra mála.
  5. Varast skal öll upphróp og læti, en nota fyrirfram ákveðin merki.
Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA
Þórarinn Karlsson
11.12.2008 11:04
Skilyrði fyrir brautarkeppnum
SKILYRÐI FYRIR BRAUTARKEPPNUM
Eftirtöldum almennum skilyrðum skal fullnægt við framkvæmd og stjórnun brautarkeppna á vegum aðildarfélaga Landssambands Íslenskra Akstursfélaga. Þau skulu ávallt höfð til hliðsjónar þegar keppni er skipulögð. Skilyrði þessi skulu gilda frá 1. janúar 1993.

Eftirtaldir yfirmenn skulu vera til staðar:

  1. Keppnisstjóri hefur alla yfirstjórn á svæðinu og skulu allir að lúta valdi hans.
  2. Ritari sér um alla útreikninga og tímatöku varðandi framgang keppninnar og úrslit.
  3. Brautastjóri skal sjá um alla stjórn við brautina svo sem ræsingu, endamark, pittsvæði,flaggara og aðstoðarfólk á svæðinu.
  4. Þulur skal sjá áhorfendum og keppendum fyrir almennum upplýsingum meðan á keppni stendur. Jafnframt skal sjá til þess að hátalarakerfi sé á staðnum í tíma.
  5. Skoðunarmenn eru skipaðir af LÍA og skal yfirskoðunarmaður jafnframt vera öryggisfulltrúi LÍA. Þeir sjá um skoðun skv. reglum.
  6. Dómnefnd þriggja manna skal skipuð í öllum keppnum. Aðilar dómnefndar skulu vera frá LÍA, keppnishaldara og öðrum klúbb.

Umsóknir og leyfi:
Umsóknir um keppnir skulu hafa borist LÍA amk. 2 vikum fyrir keppni. Í keppnisumsókn skal tilgreina staðsetningu, tímasetningu, keppnisreglur og breytingar, auk nákvæmrar dagskrár keppninnar. Í dagskrá skulu koma fram allar tímáætlanir svo sem þátttökufrestir, skoðun, ræsing, hlé og áætluð lok keppni, auk lýsingar á öllum aukaatriðum og skemmtunum sem boðið verður upp á. Einnig skal tilgreina í dagskrá keppninnar nöfn þeirra forsvarsmanna sem
taldir eru upp hér að ofan auk dómnefndar. Þáttökulisti með upplýsingum um keppendur og ökutæki skal skila til LÍA strax og hann liggur fyrir. Með keppnisumsókn skal auk þess fylgja leyfi landeiganda eða umráðaaðila viðkomandi keppnissvæðis. Keppnisstjóri skal sjá til þess að öll leyfi frá yfirvöldum viðkomandi svæðis, tryggingar og leyfi landeigenda séu fyrirliggjandi amk. viku fyrir keppni. Fulltrúi LÍA í dómnefnd keppninnar gefur út endanlegt keppnisleyfi. Sé þessum skilyrðum ekki fullnægt innan tilskilins tíma verður keppnisleyfi ekki gefið út. Gengið skal frá tryggingu vegna keppni með amk. viku fyrirvara. Ógreiddar tryggingar frá fyrri keppnum leiða til sviptingar á keppnisleyfi. Allar brautarkeppnir skulu haldnar skv. reglum LÍA og FIA (FIM). Allar breytingar á reglum eru háðar samþykki LÍA. Keppnisstjóri skal sjá til þess að vakthafandi lögreglumenn hafi dagskrá keppninnar, svo og að upplýsingar um allar breytingar og atvik er upp kunna að koma berist þeim.

Meðan á keppni stendur þurfa eftirtalin atriði að vera fyrir hendi á keppnisstað:

  1. Sjúkrabifreið. (Hjálparsveit, læknir.)
  2. Nægilega mörg slökkvitæki. (Í lagi)
  3. Merkjaflögg skv. reglum.
  4. Dráttarbíll.
  5. Björgunarbíll með öryggisbúnaði og mannskap.
  6. Talstöðvar, og/eða annað samband við rásmark og pitt.
  7. Aðstoðarfólk og flaggarar.
  8. Sími og/eða talstöðvarsamband vegna boðunar í slysatilfelli.
  9. Viðunandi hátalarakerfi vegna áhorfenda og pittsvæðis.
  10. Merkingar á starfsfólk.
  11. Afmörkuð svæði fyrir áhorfendur.

Þess skal ávallt gætt, að áhorfendur og aðrir séu ekki við varasama staði nálægt brautinni. Fólk má aldrei standa utan í beygjum eða lægra en brautin heldur á þar til gerðum áhorfendasvæðum. Áhorfendur eiga ekki að vera í pittsvæðum, nema sérstaklega sé gert ráð fyrir því. Áður en keppni hefst, skal dómnefnd keppninnar og eftirlitsaðili LÍA ganga úr skugga um að öll ofantalin skilyrði hafi verið uppfyllt og allar öryggiskröfur sem upp eru taldar hafi verið frágengnar. Dómnefnd og/eða lögregla geta stöðvað keppni hvenær sem er, telji þeir einhverju ábótavant. Tímasett heildarúrslit skulu hengd upp á upplýsingatöflu keppnisstjórnar og tilkynnt keppendum strax og þau liggja fyrir, þau skulu birt yfir stöðu keppenda yfir heildina og í öllum flokkum. Lokaúrslit skulu undirrituð af keppnisstjóra og afhent fulltrúa LÍA í dómnefnd. Keppnisstjóri, öryggisfulltrúi og dómnefnd keppninnar skulu skila skriflegri skýrslu um keppnina til LÍA. Alvarleg og ítrekuð vanhöld og brot við stjórnun og framkvæmd keppna af hálfu keppnishaldara geta leitt til viðurlaga svo sem áminninga, fjársekta og sviptingar á leyfi til að halda keppni til lengri eða skemmri tíma. Dómnefnd hverrar keppni skal tilkynna stjórn LÍA ef um slæm og ítrekuð brot er að ræða.

Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA
Þórarinn Karlsson
11.12.2008 10:38
Skilyrði fyrir Rallykeppnum
SKILYRÐI FYRIR RALLYKEPPNUM
Eftirtöldum almennum skilyrðum skal fullnægt við framkvæmd og stjórnun rallkeppna á vegum Landssambands Íslenskra Akstursfélaga. Þau skulu ávallt höfð til hliðsjónar þegar keppni er skipulögð. Skilyrði þessi skulu gilda frá 1. Janúar 1994.
Eftirtaldir yfirmenn skulu vera til staðar:
  1. Keppnisstjóri hefur alla yfirstjórn keppninnar og skulu allir að lúta valdi hans.
  2. Ritari sér um alla útreikninga og tímatöku varðandi framgang keppninnar og úrslit.
  3. Brautarstjóri hefur yfirumsjón með vali og undirbúningi sérleiða.
  4. Tengiliður keppenda, sér um öll samskipti við keppendur.
  5. Blaðafulltrúi sér um öll samskipti við fjölmiðla í tengslum við keppnina.
  6. Starfsmannastjóri sér um þjálfun og stjórn starfsmanna.
  7. Skoðunarmenn skipaðir af LÍA. Þeir sjá um skoðun skv. reglum.
  8. Dómnefnd þriggja manna skal skipuð í öllum keppnum. Aðilar dómnefndar skulu vera frá LÍA, keppnishaldara og öðrum klúbb.
  9. Allir starfsmenn keppninnar skulu vera merktir.
Í hverri keppni skulu vera amk. tveir undanfarar og einn eftirfari.

Aðrir starfsmenn keppninnar eru:
Undanfari 00:
  1. Er ca. 30 til 60 mínútur á undan keppninni og lokar leiðinni, setur upp lokunarskilti og/eða innakstur bannaður skilti
  2. Athuga öll merki og hættur.
  3. Athuga lokanir leiða sem skera sérleiðina.
  4. Athuga tímavarðsstöðvar og að bremsukaflar séu nægilega langir.
  5. Afhendir gögn til tímavarða og prufar tímatöku.
Undanfari 0:
  1. Gengur úr skugga um að leiðin sé örugglega lokuð, og að enginn sé á hættulegum stöðum við leiðirnar.
  2. Athugar merki og hættur og lokanir leiða sem skera sér leiðina.
  3. Yfirfer lengd bremsukafla.
  4. Prufar tímatöku.
Eftirfari E:
  1. Athugar hvort keppnisbílar hafi stöðvað á leiðinni.
  2. Safnar tímakortum/tímablöðum á tímavarðstöðvum.
  3. Telur tímakortin og ber þau saman við fjölda keppenda og gætir þess vel að enga keppendur vanti.
  4. Tilkynnir aksturstíma til stjórnstöðvar.
  5. Eftirfari á ekki að safna saman merkingum af leiðum, flytja keppendur, tefji það störf hans.
  6. Læknir er staðsettur í eftirfarabifreið og sinnir þeim slysum og/eða sjúkdómum er upp kunna að koma, jafnframt stjórnar hann aðgerðum á slysstað.
Tímaverðir:
  1. Sjá um allar tímtökur og skráningu tíma.
  2. Geta úrskurðað um vafaatriði skv. beiðni keppnisstjóra og/eða dómnefndar, t.d. ef einhver keppenda styttir sér leið eða þess háttar.
  3. Starfsfólk stjórnstöðvar sér um útreikning og skráningu tíma.
 
Umsóknir og leyfi:
Umsóknir um keppnir skulu hafa borist LÍA amk. 3 vikum fyrir keppni. Umsókn skal fylgja leiðalýsing, tímaáætlun, leyfi veghaldara og dagskrá. Í dagskrá skulu koma fram allar tímaáætlanir svo sem þátttökufrestir, skoðun, ræsing, hlé og áætluð lok og lengd keppninnar. Einnig skal tilgreina í dagskrá keppninnar nöfn forsvarsmanna samkvæmt reglum auk dómnefndar. Keppnishaldari sækir einnig umleyfi fyrir keppninni svo og undanþágur frá hámarkshraða hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og lögreglustjórum eftir því sem við á.
Tryggja skal, að samband sé haft við alla hlutaðeigandi aðila við val sérleiða. Afla skal skriflegs leyfis frá Vegagerðinni eða veghaldara sé um einkaveg að ræða. Einnig skal haft samband við ábúendur við sérleiðir, hópferðaskrifstofur, náttúruverndarráð og aðra þá er hagsmuna hafa að gæta, eftir því sem við á í hvert skipti. Endanlegt rásleyfi er gefið út af sýslumanni eða fógeta þess staðar þar sem keppnin hefst, eftir að gengið hefur verið úr skugga um að öll skilyrði séu uppfyllt. Öll leyfi skulu vera fyrirliggjandi amk. viku fyrir keppni. Fulltrúi LÍA í dómnefnd gefur út endanlegt keppnisleyfi. Sé þessum skilyrðum ekki fullnægt innan tilskilins tíma verður keppnisleyfi ekki gefið út. Gengið skal frá tryggingu vegna keppni með amk. viku fyrirvara. Ógreiddar tryggingar frá fyrri keppnum leiða til sviptingar á keppnisleyfi. Keppnisstjóri skal sjá til þess að öll gögn keppninnar þe., leyfi fyrir keppni, öryggisáætlun, símanúmer keppnisstjórnar, lögreglu og sjúkraliðs auk annarra nauðsynlegra upplýsinga, séu í höndum eftirtalinna aðila:
  • Tímaverðir
  • gæslu og lokunarfólk
  • undanfarar, eftirfarar
  • lögregla
  • hjálparsveit
  • slysadeild
  • LÍA og dómnefnd
 
Allar rallkeppnir skulu haldnar skv. reglum LÍA og FIA. Allar breytingar á reglum eru háðar samþykki LÍA. Áður en keppni hefst skal dómnefnd og eftirlitsaðili LÍA ganga úr skugga um að öllum skilyrðum hafi verið fullnægt og að allar öryggiskröfur uppfylltar. Dómnefnd og/eða lögregla geta stöðvað keppni hvenær sem er, telji þeir einhverju ábótavant. Tímasett heildarúrslit skulu hengd upp á upplýsingatöflu keppnisstjórnar og tilkynnt keppendum strax og þau liggja fyrir, þau skulu birt yfir stöðu keppenda yfir heildina og í öllum flokkum. Lokaúrslit skulu undirrituð af keppnisstjóra og afhent fulltrúa LÍA í dómnefnd. Keppnisstjóri, öryggisfulltrúi og dómnefnd skulu skila skriflegri skýrlslu um keppnina til LÍA. Alvarleg og ítrekuð vanhöld og brot við stjórnun og framkvæmd keppna af hálfu keppnishaldara geta leitt til viðurlaga svo sem áminninga, fjársekta og sviptingar á leyfi til að halda keppni til lengri eða skemmri tíma. Dómnefnd hverrar keppni skal tilkynna stjórn LÍA ef um slæm og ítrekuð brot er að ræða.
Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA
Þórarinn Karlsson

S M Þ M F F L
1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31



Hönnun og forritun : Studio-V