Nú er hafin uppsetning á reglum og fleiri uppfærslum á vef Akstursíþróttanefnda ÍSÍ/LÍA. Uppfært dagatal er komið ásamt verðskrá, reglum FIA um veltibúr ásamt grunnreglum FIA úr International Sporting Code. Næst koma uppfærðar keppnisreglur fyrir hverja grein.
Ákveðið hefur verið að nefna þennan kafla á vefnum Reglur "Hjalti" til minningar um félaga okkar og helsta reglufræðing akstursíþrótta til fjölda ára, Hjalta E. Hafsteinsson, en hann lést á síðasta ári. Hjalti átti stóran þátt í allri reglusmíði, þýðingum og útfærslum á reglum í öllum greinum akstursíþrótta og var hafsjór fróðleiks í því efni. Hann var einnig ævinlega fús til að að aðstoða menn í sambandi við reglur og túlkun þeirra. Það er því við hæfi að vitna til hans þegar reglur í akstursíþróttum eru til umfjöllunar. Þess vegna getum við alltaf vitnað til "Hjalta" í sambandi við reglur.