11.12.2008 11:33
Öryggis
BJÖRGUNARÁÆTLUN
Keppnisstjóri skal sjá um að þessari áætlun sé framfylgt og fela það ákveðnum mönnum. Halda
skal fund þessara aðila og fara yfir það fyrirkomulag sem viðhaft er í hvert skipti.
Eftirfarandi tæki og mannskapur þurfa vera til staðar við allar brautarkeppnir, þar sem hætta er talin á veltum og öðrum óhöppum.
  1. Björgunarbíll, sérstaklega ætlaður til flutnings á tækjum.
  2. Nægilegur fjöldi slökkvitækja ásamt mannskap á þau.
  3. Sjúkragögn og menn til að veita fyrstu hjálp.
  4. 2 - 3 menn í hópum til að ná keppendum úr bílum.
  5. Eldtefjandi fatnaður á mennina í 4. lið.
  6. Vinnuhanskar á alla.
  7. Vasahnífar í hvern hóp.
  8. Flaggarar skv. keppnisreglum.
Þegar óhapp á sér stað skal eftirfarandi tilhögun koma til framkvæmda:
  1. Flaggarar gefi öðrum keppendum þegar merki skv. reglum.
  2. Björgunarmenn, slökkvitækjamenn og fyrsta hjálp hraði sér strax á staðinn. Þeir skulu gæta sín á öðrum keppendum.
  3. Aðrir starfsmenn gæti þess strax að áhorfendum, aðstoðarmönnum og öðrum sé haldið frá staðnum
  4. Þulur og keppnisstjóri fylgist grant með því sem gerist.
  5. Björgunarmenn gangi úr skugga um að öryggisrofi keppnistækis hafi verið sleginn út og athugi ástand ökumanns. Sé hann ómeiddur skal allt kapp lagt á að koma honum úr bílnum og frá brautinni. Sé grunur um meiðsli, skal strax kalla til fyrstu hjálp og sjúkrabíl. Varast skal öll upphróp og læti, en nota fyrirfram ákveðin merki. Slökkvimenn einbeita sér að því að koma veg fyrir eld.
  6. Athuga ástand ökumanns með tilliti til losts og heilahristings.
Sé um banaslys eða annað alvarlegt slys að ræða skal eftirfarandi tilhögun koma til framkvæmda:
  1. Keppnin skal tafarlaust stöðvuð.
  2. Keppnisstjóri boði til lögreglu og sjúkralið, einnig Rannsóknarlögreguna sé um banaslys að ræða.
  3. Keppnisstjóri setji sig strax í samband við stjórn LÍA eftir þeim leiðum er getið er um í keppnisleyfi.
  4. Keppnisstjóri ásamt LÍA ákveða í sameiningu framhald allra mála.
  5. Varast skal öll upphróp og læti, en nota fyrirfram ákveðin merki.
Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA
Þórarinn Karlsson

S M Þ M F F L

Fatal error: Call to undefined function cal_days_in_month() in /usr/home/vefir/www.lia.is/www/dagatal.php on line 34